Blessuð sólin elskar allt

Höfundur: Örn Friðriksson

Textahöfundur: Hannes Hafstein

Blessuð sólin elskar allt,
allt með kossi vekur.
Haginn grænn og hjarnið kalt,
hennar ástum tekur.

Geislar hennar út um allt,
eitt og sama skrifa.
Á hagann græna og hjarnið kalt,
Himneskt er að lifa